þriðjudagur, mars 28, 2006
Skrýtið
Síðustu dagar hafa fært mér nýja sín á þetta blessaða internet. Ég hef alla tíð notað internetið sem upplýsingamiðil, hvort sem það felur í sér að ég komi upplýsingum til fólks sem ég þekki eða ég sanki að mér fróðleik um aðra. En hvað er blog? Minn skilningur segir að bloggið sé staður þar sem þú kemur hugrenningum þínum í orð og miðlar þeim til annarra; í þessu tilfelli þeirra sem nenna að lesa. Þú getur kommentað á hugrenningar fólks og allt í lagi að gera það. Sumir blogga í nafnleynd og sumir kommenta í nafnleynd og það er ekkert að því. Eitthvað finnst mér samt skrýtið þegar fólk kommentar á bloggfærslur þeirra sem það þekkir ekki neitt. Ég sjálf hef aldrei, þar til nú, lent í því að fá komment frá aðila sem ég þekki ekki neitt. Þetta tilfelli gekk reyndar aðeins lengra. Ég hélt að þetta væri frá annarri manneskju með sama nafni og ákvað að senda þeim aðila nokkrar línur. Ég lét það samtal enda mjög fljótt þar sem ég komst að því í gegnum tölvuskjáinn minn að ég hafði ekki hugmynd um hver þessi manneskja var eða af hverju eiginlega ég var að tala við hana. Þetta tók svona 15 mínútur fyrir mig og ég held að ég hafi komið henni í skilning um að þetta væri ekki það sem ég hyggðist gera, deila persónulegum hlutum um mig með aðila sem ég þekkti ekki neitt. En nóg um það, fólk er misjafnt og aðferðirnar mismunandi. Það sem ég vildi helst segja ykkur er þetta:
Það eru ekki allir sem hugsa eins og maður sjálfur. Þegar maður setur hugrenningar sínar niður þá er alls ekki víst að það séu bara þeir sem þekkja mann sem lesa þær. Það er heldur ekki víst að þeir sem villist inn til manns fari strax í burtu. Kannski sjá þeir eitthvað sem vekur áhuga á einn eða annan hátt. Svo eru líka til þeir sem leita að upplýsingum um þig á netinu, finna bloggið og eru þar með komnir í það feitt :) Mér er svo sem nokk sama um þetta allt saman. Mér er alveg sama hver les það sem ég skrifa. Mér er líka alveg sama hver kemur aftur og aftur og les. Þetta vekur mann samt óneitanlega til umhugsunar um hvað maður skrifar og hvernig. Eru þetta hlutir sem þú vilt að allir viti ?? Það er fylgst með okkur úr öllum áttum..(mér líður eins og samsærisgæjanum í spaugstofunni ..hahahahaha)
over and out
proppe ♥
6:49 PM
link to post
2 comments