HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • ..og skemmtilegasta árshátíðin er......
  • ..og til að toppa það...
  • Tær snilld
  • ...og aldrei það kemur til baka
  • ég þooooli ekki.....
  • aðal töffararnir í bænum
  • jólin jólin allsstaðar....
  • Lasarus.....
  • Proppé og co sækja í sig veðrið


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    föstudagur, febrúar 10, 2006
    ok ok ok ..ég veit ég veit...

    ..að það er alveg heill mánuður síðan ég bloggaði. Þetta stendur allt til bóta. Ég ætla ekki að koma með neinar afsakanir..þetta bara er svona :)

    Það hefur nú samt sem áður ýmislegt á daga mína drifið. Til dæmis hef ég eytt yndislegum stundum með strákunum. Ég er á svona stað núna að ég get kysst þá og knúsað í kaf. Óttarr Daði kemur með komment upp úr þurru: "mamma mín, þú ert falleg" og svo bara ekki meir, eða "mamma, ég elska þig svooona mikið" og ef þetta fær hjartað ekki til að bráðna þá veit ég ekki hvað. Þeir bræður eru samt ennþá í nettri baráttu sem felst helst í að Óttarr klórar eða bítur Róbert og þá öskrar Róbert á hann og það þarf ekki meira en það til að Óttarr fari að væla. Fyndið. Þetta litla rassgat, Róbert, ef honum mislíkar eitthvað þá horfir hann á mann með þvílíkum svip (svona "églætþettaskoekkiyfirmigganga" svip) og öskrar. Það nýjasta er þegar Óttarr ræðst til atlögu þá stendur Róbert með hendina í áttina til hans og öskrar STOPP, HÆTTU!!!!!!!!! Ótta veða góur vi mi!!! Ha ha ha þetta er alveg himneskt. Það er svo fyndið hvernig genin skiptast á milli. Þetta er nákvæmlega eins þegar við, aumir foreldrarnir, erum að reyna að ala þá upp og kenna þeim lífsreglurnar. Óttarr verður sár, eyðir nokkrum tárum en svo er lexían meðtekin. Róbert aftur á móti stendur bara upp og segir "hættu babbi gamma mig" og rífst bara á móti. Hahahahah ....ég vildi að þið gætuð orðið vitni að þessu....þetta er sko betra en besta grínmynd

    Það er ekki minna merkilegt að VIÐ ERUM AÐ FARA AÐ GIFTA OKKUR!!!!. Já, kannski ekki seinna vænna. Við erum búin að vera trúlofuð í rúm 5 ár og ég held að við getum varla beðið mikið lengur. Við erum búin að bóka salinn (aðeins út úr bænum en þið, elsku vinir, eigið bara eftir að njóta þess enn frekar) og kirkjan er næst á dagskrá. Ég fann kjólinn minn fyrir slysni í gær á spottprís og nú bara get ég eiginlega ekki beðið. Það að giftast manninum sem maður elskar er bara eitt það besta sem ég get hugsað mér. Ég hlakka svo til að ég er að springa. Ég á pottþétt eftir að deila þessu frekar með ykkur í framtíðinni..bíðiði bara :)

    Annars er allt að verða vitlaust í vinnunni. Bókanirnar streyma inn og greinilegt að fólk er á fullu að skipuleggja sumarfríin sín. Það væri svo sem allt í lagi mín vegna ef fólk gerði þetta aðeins skipulegra....fjöldinn myndi til dæmis taka sig saman og senda bókanir svolítið dreifðara yfir árið...en ég ræð því víst ekki og sit sveitt í vinnunni í staðinn!

    Síðast en ekki síst fæ ég RUV ekki nógsamlega þakkað fyrir að vera byrjaðir að sýna Desperate Housewifes. Ég sit límd fyrir framan kassann og bíð svo í heila viku spennt eftir næsta þætti. Ég meira að segja missti út úr mér í lok þáttarins í gær "hva..búið????". Ég hélt sko að þetta væri rétt byrjunin. Þetta er bara svo einlægt og svo fyndið hvað maður getur fundið sig í hverri einustu persónu. Minns vill búa í svona götu :o)

    þangað til næst...sem verður vonandi mjög fljótt (birt án ábyrgðar)

    HP

    proppe ♥ 1:29 e.h. link to post 1 comments