HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • ..og til að toppa það...
  • Tær snilld
  • ...og aldrei það kemur til baka
  • ég þooooli ekki.....
  • aðal töffararnir í bænum
  • jólin jólin allsstaðar....
  • Lasarus.....
  • Proppé og co sækja í sig veðrið


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    mánudagur, janúar 09, 2006
    ..og skemmtilegasta árshátíðin er......

    Batman rocks

    ...ÁRSHÁTÍÐ FLUGLEIÐAHÓTELANNA 2006!!!!!! Vá hvað það var gaman eins og þessar myndir sína. Þegar ég frétti af því að árshátíðin ætti að vera 7.janúar fékk ég fyrst smá svona andvarps- stunu-dæs tilfinningu. Mér fannst þetta svo nálægt jólunum og hugsaði með mér að maður hlyti að vera útbelgdur eftir reykt kjöt-malt&appelsín-heimatilbúinn ís blöndu á hverjum degi en svo varð stemmningin meiri og meiri með hverjum deginum og þetta stóð sko barasta alveg undir merkjum. Maturinn var frábær og hvítvínið var líka frábært :) Ég dansaði eins og vitleysingur og fannst það sko ekki leiðinlegt. ....Það var samt smá skrýtinn fýlingur þarna á dansgólfinu. Diskótekarinn spilaði allt frá "one two three a'clock, four a clock rock" upp í "Waterloo" og "what is love..baby don't hurt me..don't hurt me..no more" og þar af leiðandi voru allar kynslóðir á dansgólfinu í einu og það var frrrrrábært. Það er alltaf gaman að horfa á siðprúðu vinnufélagana tapa sér í trylltum dansi.....svo trylltum að maður hélt ekki að fólkið ætti þetta til...mú ha ha ha ha ha.

    Ég og Hildur Ýr skvís

    Það var samt óneitanlega ónefndur kokkur í Keflavík sem stal senunni. Hann dansaði um allt gólf með bumbuna út í loftið..BER AÐ OFAN og lék sér að því að rekast utan í skvísurnar með miklum tilþrifum. Hildur Hermanns átti alveg mómentið þegar hún stóð og hristist af hryllingi eftir að hafa fengið sveitta loðna bumbu í mjóbakið...hahahahaha..Hildur þú ert æði !!!!!

    Annars var þetta frábært með öllu sem því fylgir. Það voru misgóð skemmtiatriði, sum klikkuðu svo mikið að þau voru drepfyndin... ein "blindfull" ræða þar sem allir voru farnir að plotta hvernig ætti að koma ræðumanninum niður úr pontunni, og einn sem skandaliseraði á dansgólfinu. Það voru reyndar að sjálfsögðu líka miiiis miiiiis miiiiis áhugaverðir skandalar sem verður ekki rætt frekar um hér....


    Berglind, Moi, Hildur ýr og Hildur Her.

    Takk fyrir kvöldið stelpur......þetta verður lengi í minnum haft :)


    proppe ♥ 9:15 PM link to post 5 comments