HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • aðal töffararnir í bænum
  • jólin jólin allsstaðar....
  • Lasarus.....
  • Proppé og co sækja í sig veðrið


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    fimmtudagur, desember 29, 2005
    ég þooooli ekki.....

    ...þennan blessaða hugsunarhátt í þessu þjóðfélagi okkar. HVAÐ ER AÐ? Það er staðreynd sem ekki verður frá horft að ég er lifandi og ég bý á Íslandi og á mína fjölskyldu. Hitt er annað mál að mér líður líka bara alveg djessgoti vel. Ég er hamingjusöm og lífið brosir við mér. Það sem ég þarf að einbeita mér virkilega að er að horfa fram hjá þessu blessaða stressi í þessu samfélagi okkar. Ég var nefnilega að fatta í gær að Íslendingar kvarta og kvarta en við búum þetta stress allt saman til sjálf. Um hvað snúast fréttirnar: peninga, peninga, peninga, kjaramál, laun, ÚRVALSVÍSITÖLUR, gengi og bla bla bla. Ég persónulega stend föst á því að ég eigi eftir að lifa hér í að minnsta kosti 60 ár í viðbót eða svo og ég ætla að hafa þau 60 ár mjög góð...eða svona upp og niður eins og gengur og gerist. En ég ætla EKKI að láta peninga stjórna mínu lífi. Áhyggjur lífsins eru víst nógu margar og miklar þó svo að við séum ekki að búa okkur til nýjar áhyggjur með nýjum flóknum orðum eins og úrvalsvísitala og bla bla bla. Ef gengið fellur, þá bara fellur það og ég tekst við það þá. Ég er ekki að segja að menn eigi að vaða í blindni áfram en ef hver sníðir sér stakk eftir vexti og er hamingjusamur í hjartanu þá skiptir úrvalsvísitalan eða gengisþróun engu máli. Ef maður missir vinnuna þá bara missir maður vinnuna og tekst á við það þá. Ætlum við að lifa hvern dag við að hafa áhyggjur af því hvað næsti dagur ber í skauti sér? Nei...ekki ég..því ég lifi fyrir hvern dag í einu og leyfi hverjum degi að blómstra. Muniði í dag þegar þið heyrið fréttir af gengishagnaði eða tapi eða úrvalsvísitölu eða vöxtum að dagurinn í dag er fyrsti dagurinn af restinni af lífinu ykkar og viljið ekki að sá tími sé áhyggjulaus og góður? I REST MY CASE.

    proppe ♥ 10:54 f.h. link to post 1 comments