þriðjudagur, desember 27, 2005
jólin jólin allsstaðar....
Gleðileg jól allir saman. Nú er maður loksins búinn að fá leyfi fyrir því að byrja að blogga á ný og nú verður það þá gert með trompi....eða það er að minnsta kosti stefnan í dag :) En...svo ég byrji nú formlega.......
Gleðileg jól allir saman
Ég vona að þið hafið haft það sem allra allra best. Við erum búin að hafa það mjög gott. Ég er búin að borða á mig gat svo vægt sé til orða tekið. Ég hélt að það hefðu verið endalok þessa át"sessions" í gær þegar ég STÓÐ í orðsins fyllstu merkingu OFAN Í skálinni með lakkrískonfektinu....en ég trompaði það víst áðan í kökuboði eins afleggjarans af familíunni. Ég hefði ekki getað komið einni rúsínu niður í viðbót..ég held meira að segja að ég hefði sagt nei við ís og er þá miiiiiikið sagt. Og nú held ég að líkaminn sé kominn í verkfall af öllum þessum viðbjóði og ég er að fyllast af kvefi. Ég segi því bara stríði á hendur með engiferrót og það rétt ræður hvort það ætlar að streitast á móti!!
Annars er ég mjög hamingjusöm þessa dagana. Lífið gengur sinn vanagang og ég hef náð að láta hina stóísku ró stjórna mér undanfarna daga :) Það er alveg ótrúlega gott þegar maður er ekki alltaf að svekkja sig á náunganum eða því hvernig hlutirnir fara. Þetta er bara í okkar höndum og ég er meistari í að svekkja mig á sjálfri mér en nú er því barasta bara lokið því ég er djesskoti góð eins og ég er...ætli þetta verði ekki bara partur af áramótaheitinu. ...svei mér þá ef maður setur loksins áramótaheit.
Óttarr Daði og Róbert Aron eru í miklu stuði þessa dagana. Óttarr Daði fann allt í einu upp á því að útvarpa því í jólaboðum að hann væri með ofnæmi fyrir eggjum þegar hann var japlandi á snúð með eggjum í og allir nærstaddir fengu flog.....það er náttúrulega Ragnhildur í leikskólanum sem er með ofnæmi fyrir eggjum en mínum finnst það bara smá kúl :) Svo var Garðar að kenna honum nýja útgáfu af laginu: Í skóginum stóð kofi einn og þá er það ekki JÓLASVEINN ég treysti' á þig heldur JÓN AXEL ég treysti' á þig!!. Garðar fannst þetta að sjálfsögðu drepfyndið. En Óttarr tók þetta lengra og sannaði fyrir mér áðan að hann er með nákvæmlega sama húmor og þeir bræður Jón Axel og Garðar og Óli Ásgeir sonur Jóns. Ég var nefnilega að lesa Séð og Heyrt (það lummublað) og þegar ég lokaði blaðinu blasti við Jólasveinn á baksíðunni. Þá heyrist í Óttari: nei sko mamma, sjáðu, þarna er JÓN AXEL!!!!! Geri aðrir betur.
Róbert Aron er alveg á fullu að reyna að finna jólasveininn hins vegar. Það eru búnir að koma jólasveinar í nokkur jólaboð nú um jólin og þegar við vorum hjá mömmu áðan og fólkið var að streyma inn þá heyrðist í Róbert í hvert sinn sem dyrasíminn hringdi: oh, lólaseinn. Hann notar svo öll mannamót til að bræða fólk með knúsi og kossum...ekki aaaaalveg það leiðinlegasta sem minnn gerir :)
Annars bið ég ykkur viiiiiinsamlegast að leggjast á bæn með mér að mennirnir sem stjórna skýjunum hlunkist með smá snjó niður til okkar fyrir gamlárskvöld... í ALVÖRU...það endar með því að ég flyt til Súgandafjarðar til að fá minn skerf af snjó.
Takk í bili
HP
proppe ♥
9:33 e.h.
link to post
2 comments