laugardagur, október 22, 2005
Lasarus.....
Jæja...nú held ég að það sé loksins komið að því að við komum þessari blessuðu síðu okkar í gang ( og þó fyrr hefði verið). Af okkur í Marteinslauginni er bara allt gott að frétta...reyndar kom lasarus í heimsókn og Róbert er búinn að vera mjög lasinn, svo ekki sé meira sagt. Þetta litla skinn sem kvartar aldrei (og þá meina ég ALDREI) hann er búinn að vakna á næturna með svo háan hita og segir ekki annað en "mamma babba ái!!". Svo var það með herkjum að ég kæmi ofan í hann nokkrum bitum af dísætu engjaþykkni í morgun ( það eru alvarleg merki um að eitthvað sé að þegar þessi litli manni vill ekki borða :o/ ). En þetta líður óðum hjá vonum við.
Róbert er annars nýbúinn að uppgötva að syngja og syngur stöðugt bíbí..baaadda...og bubbi byggir kemur mjöööög sterkur inn svo ekki sé nú meira sagt. Svo er það nýjasta að hann er orðinn mikill lyklasjúklingur og er þá ekki hægt að segja að það geti verið hvaða lyklar sem er. Ég er ekki alveg að ná þessum skyndiáhuga en hann er það mikill að hann sefur með þá, fer með þá til dagmömmunnar, gleymir þeim hvergi, fer með þá í bað og sofnar aftur með þá í höndunum á kvöldin.
Af Óttari Daða er það að segja að það var náttfataball í leikskólanum á föstudaginn og mikið stuð. Það merkilegasta þessa dagana er strákaklúbburinn sem samanstendur af honum, Róberti og Garðari og mamma má vera með svona....þegar honum hentar. Strákaklúbburinn fer að þvo bílinn og í sund og svona og á sitt eigið merki sem er notað við hvert tækifæri (rokkmerki eins stelpan í landsbankaauglýsingunni gerir í auglýsingunni um mitt kort um leið og hún syngur je, jejejeje). Þetta vekur ómælda lukku...komið frá þessum litla engli er þetta frekar krúttað :o) Svo er hann líka farinn að spila á luftgítar og það er sko svipur sem fylgir því, er að reyn að festa hann á filmu og set hann inn við fyrsta tækifæri.
Annars ætlum við að vera mjög öflug við að segja hvað á daga okkar drífur hér svo vinir og vandamenn geti fylgst með okkur.
Njótið helgarinnar....hasta la vista
proppe & co
proppe ♥
2:21 e.h.
link to post
5 comments