HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • ég þooooli ekki.....
  • aðal töffararnir í bænum
  • jólin jólin allsstaðar....
  • Lasarus.....
  • Proppé og co sækja í sig veðrið


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    mánudagur, janúar 02, 2006
    ...og aldrei það kemur til baka

    Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla. Það er alveg ótrúlegt hvað tilfinningarnar mínar fara alltaf á örvandi svona um áramótin. Maður gerir einhvern veginn upp gamla tíma og horfir inn í framtíðina með plönum og planleysum :)
    Árið 2005 var mjög gott fyrir mig svo ekki sé meira sagt. Hápunktarnir voru Tinna og litli Hrafnkell Orri kraftaverka kall með meiru (maður vanmetur það að eignast heilbrigð börn og gleymir að það getur alltaf eitthvað komið fyrir...en Hrafnkell Orri er hetja og er sko sssssæææætasti frændinn minn!!! ég á eftir að spilla honum mikið mikið mikið í komandi framtíð! ) Fjölskyldan mín var heilbrigð á árinu. Ég tók, eftir mjög langa umhugsun þá ákvörðun að geyma seinna árið af söngkennaranáminu og skella mér að vinna og sé sko ekki eftir því í eina mínútu. Maður vanmetur nefnilega líka góða og skemmtilega vinnustaði. Það er fátt betra en að vakna og hlakka til að fara í vinnuna. Ég fór í IDOLIÐ og lærði allt sem ég ætlaði að læra og meira til. Ég lærði fyrst og fremst að tapa og það var einmitt ætlunin með þáttökunni. Takk fyrir þið öll sem studduð svo rækilega við bakið á mér. Það er alltaf gott að finna að maður á góða að og ég get fullvissað ykkur um að ég hef sko ekki sungið mitt síðasta.....ÞVERT Á MÓTI. Bíðiði bara! Ég skrapp tvisvar til útlanda á árinu....í bæði skiptin til Boston og í bæði skiptin í einn sólahring (silly me en það var ótrúlega gaman. Þóra: TAKK fyrir æðislegan hlaupadag á milli verslana og MAMMA OG TINNA: þetta verðum við að endurtaka og í lengri tíma takk! ) Það er aðeins einn depurðarblettur á árinu: Birna amma dó í mars. Það er alveg ótrúlegt hvað það er erfitt að kveðja þá sem standa manni nærri, jafnvel þó fólk sé löngu tilbúið og hafi ekki margt að lifa fyrir. Undanfarið hef ég fundið lyktina af henni upp úr þurru og það er svo gott...mér finnst eins og hún standi við bakið á mér og fylgi mér áfram. Takk fyrir það amma mín.... nú á ég tvo verndarengla..tvær ömmur sem leiðbeina mér og það er sko meira en margur annar.

    En árið 2006 leggst vel í mig. Ég er búin að setja mér nokkur MARKMIÐ sem ég ætla að stefna að og svo er bara að sjá hversu bein brautin verður.

    Takk til ykkar allra sem áttuð spor í kringum lífsleiðina mína á árinu 2005. Ég vona að sporin verði mjög mörg á árinu 2006.

    Kveðja HP

    proppe ♥ 8:07 e.h. link to post 2 comments