sunnudagur, mars 26, 2006
"never underestimate your enemy"
Mér datt þessi setning í hug í dag þegar ég heyrði sögu af "LITLA" barninu mínu, honum Róberti - ekki að hann sé óvinur minn. Síður en svo, en okkur foreldrum hættir oftar en ekki til að vanmeta krílin okkar og halda að þau geti mun minna og skilji mun færra en þau í raun gera. Og hefst þá sagan: Við Garðar fórum í brúðkaup í gærkvöldi (alveg róleg, nánari lýsing neðar) og mínir elskulegu tengdaforeldrar sátu hjá strákunum á meðan. Í eldhúsinu stendur mjög virkur meðlimur fjölskyldunnar sem gegnir mikilvægu hlutverki, nefnilega ísskápurinn. Hann er með eihverju svona tölvukerfi sem lætur mann vita ef maður gleymir að loka hurðinni eða ef rafmagnið fer af honum (...þegar ég skrifa það fatta ég allt í einu hversu mikið sölutrix það hefur verið að segja okkur það....ekki setti ég batterí í hann svo hann gæti pípt á mig í rafmagnsleysi.....12 stig fyrir Elko!!). Málið er að það er einhver skynjari á frystinum sem fer inn þegar hurðinni er lokað og undanfarið hefur stundum ekki alveg verið að virka þó hurðinni sé lokað...heldur þá sagan áfram: Rétt eftir ljúffengan kvöldverð, pylsur með öllu, sitja skötuhjúin með rassálfana tvo í stofunni þegar undarlegt píp fer að heyrast. Það pípir tvisvar á nokkrum augnablikum og eldra fólkið hlustar með undrun en nær ekki einu sinni að tjá sig um þetta þegar "litla" barnið, Róbert Aron, tekur málin í sínar hendur. Hljóðalaust rúllaði hann sér niður úr sófanum, labbaði að frystinum, reif hann upp, ýtti á takkann og lokaði aftur. Svo gekk hann bara í sófann og lét eins og ekkert væri sjálfsagðara! Þau fengu að sjálfsögðu vægt hláturskast þar sem litla dýrið leit út fyrir að vera þvílíkt lífsreyndur sjötugur karl! Ekki hélt ég í eina sekúndu að honum dytti þetta í hug...greinilegt að þau taka ekki bara eftir því sem maður heldur að þau taki eftir heldur líka því sem maður tekur varla sjálfur eftir og ...þá sennilega líka því sem maður vill helst EKKi að þau taki eftir.....ég held ég láti þær áhyggjur bara vera seinni tíma vandamál.
Óttarr Daði er í miklum gír þessa dagana. Hann er allt í einu að fatta svo margt að ég get alveg grenjað úr hlátri stundum bara af að hlusta á hann. Það hrynja upp úr honum spekingsyrðin og það sem flýgur í gegnum hugann..jedúddamía. Hann var til dæmis að reyna að sannfæra mig um það áðan þar sem við vorum að keyra á Miklubrautinni að hann hefði séð tvo "punkta" inni í einu trénu og það væri pottþétt "beinagrind"!!! Jebb...án þess að blikna var hann viss um að það væru beinagrindur á Miklubrautinni......ætli RLR viti af þessu...Geirfinnur týndur og svona? Svo varð ég vitni af nýjustu tísku áðan og hún útskýrði ýmislegt sem mig grunaði svo sem að væru afleiðingar tískustrauma. Óttarr er að sjálfsögðu mikill stórkarl og þegar hann stendur og pissar í klósettið segir hann Róberti statt og stöðugt að hann þurfi nú ekkert að pissa í klósettið því hann sé með bleyju. Honum finnst bróðir sinn ekki mikill pappír þegar að þessum aðferðum kemur. Minn er nefnilega búinn að fatta að það er hægt að miða..... og þá líka að það er hægt að ferðast aðeins um með bununa...upp og niður...til hliðar....og það nýjasta er að gera svona bylgjuhreyfingar!!! Þá stendur hann og mælir bununa út..einbeittur á svipinn og ef vel er að gáð má heyrast lágt "vóóó" þegar bunan fer extra nálægt mörkunum sem klósettsetan skapar. þettar útskýrir sem sagt úðann og bleytuna á gólfinu :) Ekki orð um það meir.
Já við vorum í brúðkaupi í gær. Silla, mamma Þóru vinkonu og Maggi voru að gifta sig. Vá hvað mér fannst þetta yndislegt, fólk komið á sextugsaldurinn að gifta sig, ekki út af neinu snobbi eða vitleysu heldur bara af því það elskar hvort annað!!!! Þetta gleymist svo oft..ég var grátklökk (grenja nú alveg mikið fyrir þannig að það var kannski ekki á það bætandi) og rétt náði að henda upp úr mér háu tónunum til að láta nú ekki Óskar tenór kæfa mig :) en það reddaðist eins og allt annað.
Við..aðallega ég reyndar en það er skemmtilegra að segja "VIÐ" erum í miklum brúðkaupshugleiðingum þessa dagana. Ég er búin að finna annan draumakjól (það var sem sagt hætt að framleiða hinn..hversu típískt er það) og kaupa hann og fæ hann sendan eftir 3 vikur. Get varla beðið :) Ég held ykkur við efnið og læt ykkur vita þegar nýjar fréttir berast
Annars er ég að hugsa um að fara að henda mér upp í rúm. Ég ætla meira að segja að skipta á rúminu og spreyja smá Lavender pillow mist á koddann...mmmm...góða nótt
proppe...overandout
proppe ♥
10:54 e.h.
link to post
3 comments