laugardagur, mars 11, 2006
Strákamamma
Ég heyrði einu sinni kenningu sem var þannig að stelpu-stelpur eignuðust stráka fyrst til að jafna út í þeim stelpugenin og að stráka-strákar eignuðust stelpu fyrst til að kynna þá fyrir hárteygjum og pilsum. Ég veit ekkert hvort þetta rétt en ég fékk sönnun fyrir því í gær að ég er stelpu-stelpa..ekki að mig hafi grunað annað svo sem þar sem ég kann ekkert í fótbolta :o) Málið er að ég hélt í Ikea og keypti alls konar hirslur og kassa og hélt svo heim með eitt "mission" fyrir höndum: að taka til og sortera dótið inni í prinsaherberginu. Eftir smá ástandskönnun og greiningu á því sem var fyrir framan mig komst ég að þeirri niðurstöðu að í einn kassa færu bílar, riddaradót í annan, kubbar í einn og í stærsta kassan færi það sem mest er til af og það er ....TRAKTORAR!!!!! Eða svo hélt ég. Alveg þangað til Óttarr Daði fór að taka þátt í þessu með mér og ég komst að því að þetta voru sko ekki allt traktorar eins og ég hélt. Þetta var valtari og þetta var grafa og þetta var skóflugrafa og þetta var ............. Og ég sem hélt að þetta hétu allt traktorar. Sem sagt: ég er stelpu-stelpa. Það virðist samt sem þessar elskur hafi kannski fengið smááááá af stelpugenunum í sig því Óttarr Daði hugsar mikið um hvernig hann er klæddur. Hann vill helst alltaf vera í sparifötum og svo vill hann fá rakspíra þegar hann fer út. Sokkarnir verða að snúa á ákveðinn hátt og hann fer sko ekki í hvaða peysu sem er. Það þarf helst að vera stuttermabolur. Svo sefur hann meira að segja í gallabuxum (eða heldur það, ég kippi honum úr þeim þegar hann er sofnaður) og hann verður helst að vera með belti líka. Róbert er ekki alveg eins penn í þessu :o) Honum er eiginlega alveg sama í hverju hann er en hann vill fá rakspíra og talar mikið um þegar aðrir eru fínir, þar með talið ég og það bræðir hverja frumu í mér. En eitthvað er minn að vakna til lífsins því í annað skipti á skömmum tíma í gær ákvað hann að gera sig fínan. Hann ákvað að laga aðeins á sér hárið og nudda kinnarnar og hálsinn með......VASELÍNI!!!!! Jebb.... Ég þvoði hárið á honum fimm sinnum í gær og ég bara dreyfði úr herlegheitunum. Ég hefði alveg eins getað sleppt því. Ég meira að segja setti Yes ultra plus uppþvotalög í hárið á honum...auglýsingin sagði að það leysti upp fitu......það er samt alveg feit klessa í hárinu á honum og það er eins og hann hafi smurt sig allan með mjög frísku brilliantíni. Ekki bætir að lyktin af vaselíni er EKKI sem best. Reyndar virðist shampóið hafa haft þau áhrif að það er megn shampólykt af honum öllum sem er sem betur fer skömminni skárra en vaselín stybban. Ég var meira að segja svo ráðalaus í gær að ég hringdi í HÚSMÆÐRASKÓLANN til að athuga hvort þær ættu einhver tröllaráð handa mér. Það er skemmst frá því að segja að konan sem svarað fékk hláturskast og hélt að ég væri að stríða henni. Hélt að ég væri frá einhverri útvarpsstöð. Mér leið eins og fífli :o) En þetta er fínt, nú hef ég eitthvað að segja honum þegar hann kvartar undan sínum börnum í framtíðinni!
kv. Proppus
proppe ♥
10:24 AM
link to post
7 comments