HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • ok ok ok ..ég veit ég veit...
  • ..og skemmtilegasta árshátíðin er......
  • ..og til að toppa það...
  • Tær snilld
  • ...og aldrei það kemur til baka
  • ég þooooli ekki.....
  • aðal töffararnir í bænum
  • jólin jólin allsstaðar....
  • Lasarus.....
  • Proppé og co sækja í sig veðrið


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    sunnudagur, febrúar 19, 2006
    og ég var klukkuð :)

    Þetta er svo frábært. Ég finn sömu tilfinninguna hlaupa fram í fingurgómana eins og þegar maður er klukkaður í eltingaleik (gerist samt allt of sjaldan...kannski er maður ekki nógu duglegur að fara í eltingaleik). En hér kemur Runan Monsa mín..og allir hinir.

    Fernt sem ég hef unnið við:

    1. "listakona" í Íspan, fjölskyldufirmanu. Starfið er reyndar ekki mjög "lista"krefjandi eins og nafnið gefur til kynna heldur fól í sér að skera niður állistana á milli glerjanna í gluggunum ykkar og fylla þá af litlum eitruðum kúlum sem halda rakanum úti. Díses.....vá hvað þetta var einhæft og leiðinlegt...sýni fólkinu sem sinnir þessum störfum í dag mikla mikla mikla virðingu!

    2. Hard Rock í öllu sínu veldi. Eyddi þar heilum 4 árum og einu til viðbótar á skrifstofunni. Þetta er tími sem ég mun ávallt geyma á mjög góðum stað í hjartanu mínu því þó ég hafi verið orðin aaaansi þreytt á þessu þá lærði ég að VINNA og fékk að reyna mig í vera höfuð starfsfólksins sem var besti skólinn í vinnutíð minni. Þar eignaðist ég líka svakalega marga vini sem gerðu líf mitt enn skemmtilegra og fjölbreyttara.

    3. Next. Vann í barnafatadeildinni og varð ólétt. Mjög hættulegt að vera að vinna í barnafatadeild með lítinn eins og hálfs árs prins og með annan væntanlegan...úff þeir hafa aldrei átt meira af fötum :)

    4. Icelandair Hotels: jebb og þar er ég í dag.

    Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

    1. Dirty Dancing. Ég fór meira að segja stundum með Tinnu systir á videoleiguna og leigði nýja mynd, fékk Dirty Dancing með frítt og horfði bara á hana en ekki nýju myndina

    2.Legends of the Fall. Ég hef sjaldan grátið jafnmikið yfir einni mynd

    3. Stella í Orlofi....og þá fer Stella í Framboði ekki undir sama hatt. Stella er bara ofurkona númer eitt. "lax í majonesu, laxasalat, grillaður lax, laxapaté og..laxaahjaaartaaa fyrir Saaalóóómooon :O)

    4. Green Mile
    Fjórir sjónvarpsþættir sem mér finnast skemmtilegir:

    1.Desperate Housewifes

    2. Grey's Anatomy

    3. Nip Tuck (nema þegar þeir sýna aðgerðirnar í extreme close up, þá lokar minns augunum)

    4. The Block..vona að það komi ný sería

    Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur:

    1. Pollýanna..frábær skóli í daglegu lífi

    2. Gullkorn Íslenskra barna...baaaara krúttlegt uppflettirit sem lífgar upp á daginn.

    3. Bækurnar hans Arnalds Indriðasonar. ..á ennþá eftir að lesa nokkrar og er að spara þær.

    4. Remains of the day

    Fjórir staðir sem ég hef búið á:
    1.Þinghólsbraut 63 í "gula" húsinu í 13 ár......frrrábær tími
    2. Engjasel 63...ekki eins frábær tími. Frábær að því leitinu til að þetta er fyrsta heimilið okkar Garðars og við bjuggum þar þegar Ótarr fæddist en þetta var þvílík hola og við lærðum hvernig við vildum hafa íbúðina okkar
    3. Haukshólar 3. Frábært að búa í kjallaranum hjá ömmu og afa. Strákarnir nutu þess í botn að vera nálægt langömmu og langafa og það var frrrábært að fá óvænt boð í hádegismat klukkan 11 á sunnudagsmorgni.
    4. Marteinslaug 8. úff, besti staður í heimi. Fyrsta íbúðin sem við "eigum" og ég við aldrei flytja héðan...allavega akkúrat í augnablikinu. :)

    Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

    1. Danmörk...hjá Sibbu og Adda á hverju sumri í mörg mörg mörg ár.

    2. Fort Lauderdale

    3. Kýpur

    4. Ibiza...útskriftarferð í lagi þar sem ég svaf á svölunum af því það var engin loftkæling

    Fjórar síður sem ég fer daglega inn á:
    1. nbl.is
    2. li.i
    3.simaskra.is og Þjóðskráin í vinnunni
    4. kærkominn rúntur á vinina
    Fernt matarkyns sem ég held upp á:
    1. Lasagne hjá mömmu
    2. Hvítt pasta með ekta rjómaostasósu og hvítlauk
    3. Gott brunch með amerískum pönnukökum og kanil brauði.....úff allt of sjaldan
    4. Burritoið hjá Moniku um daginn var alveg tryllingslega gott
    Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
    Áður en þetta er skrifað skal það sagt að ég sit fyrir framan tölvuna á náttfötunum sem Garðar gaf mér í tilefni konudagsins og gæti varla haft það betra ....eeeeeen
    1. liggjandi á sólarströnd með smáááá golu til að varna því að maður bráðni ofan í sandinn
    2. Í heita pottinum við Sólbrekku í Skorró
    3. Liggjandi í heitu og góðu baði
    4. Í HM með fulla vasa fjár.....ég held að það fari að koma tími á það :)

    proppe ♥ 11:10 AM link to post 3 comments