miðvikudagur, mars 29, 2006
Hvað er að frétta?
Ég var að tala við vin minn sem ég hef ekki talað við í smá tíma áðan og hann kom með alveg hreint dúndur spurningu sem ég var eiginlega að fatta hvað er frábær. Maður spyr alltaf þessarra klassísku spurninga eins og "Hvað er að frétta?" " Hvernig hefurðu það?" en í staðinn spurði hann mig: " Hvaða tónlist ertu að hlusta á?" Mér brá smá og sagði honum það og þá fékk ég þá útskýringu að hann væri kominn með leið á þessum klassísku spurningum og með því að spyrja mig að þessu vissi hann miklu meira um mig heldur en ef hann hefði spurt hvað væri að frétta. Það er eiginlega svolítið mikið til í þessu. Vinir manns þekkja sálina í manni. Þegar maður fær spurninguna "hvernig hefurðu það" þá hættir manni til að svara " bara fínt" þegar maður hefur það kannski alls ekkert fínt. Þessi litla spurning er bara alveg snilld. Langaði bara að deila þessu með ykkur. Hugsiði um að hverju þið spyrjið næst þegar þið spjallið við einhvern sem þið hafið ekki spjallað við í smá tíma...eða bara einhvern sem ykkur þykir vænt um.
proppe ♥
1:49 PM
link to post
6 comments