HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • boys will be boys
  • Smá áminning
  • Nu er vandi i uppsiglingu.....
  • Gæsunin mikla
  • Fréttabransinn...
  • Gríptu tækifærið
  • Ert þú í langhlaupi eða á sprettinum
  • hvað þýðir nafnið ykkar...alltaf skemmtilegt svona...
  • Gleðilegt sumar
  • Teiknimyndaleikurinn


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    laugardagur, mars 03, 2007
    vitrun



    Þetta er litla afmælismúsin mín, Róbert Aron. Óttarr Daði varð 5 ára síðasta sunnudag og Róbert verður 3ja ára á morgun. Þá verður stuð á bænum :)

    Þið sem hafið sent okkur góða strauma og bænir varðandi elsku tengdamömmu mína þá lítur þetta allt saman aðeins betur út núna. Hún er óðum að vakna og er aðeins farin að hreyfa sig pinkulítið. Við tökum bara fetið í þessu og horfum ekki lengra en bara einn dag í einu. Þúsund þakkir fyrir allar hugsanirnar. Þær fleyttu okkur yfir erfiðustu hjalla biðarinnar. Mér finnst ég hafa beðið í heila eilífð..og það án þess að vita eftir hverju :) Asnalegt eiginlega!

    En ég verð að deila einu með ykkur...
    Ég er svo þakklát. Þakklát fyrir frábæran hlut sem ég lærði einu sinni. Það er að SETJA MÖRK. Ég hef margsinnis og oft á tíðum orðið pirruð út í fólk og af ýmsum ástæðum. Ég gat orðið brjáluð í hjartanu mínum að fólk skyldi LÁTA mig gera eitthvað fyrir sig sem ég vildi ekki gera, LÁTA mig segja eitthvað sem ég vildi ekki segja og SETJA mig í aðstæður sem mér leið ömurlega í. Nú er þeirri tíð sem betur fer lokið. Það er samt svo skrýtið hvernig þetta kemur í bylgjum og undanfarið hef ég þurft að negla niður fæti hjá sjálfri mér ansi oft. Það hefur sýnt mér hversu þakklát ég má vera. Ég hef nefnilega gert mér grein fyrir því að ég segji það sem ÉG vil segja, ekki það sem ég held að einhver annar vilji heyra. Ég geri það sem MIG langar til að gera, ekki eitthvað sem handritið segjir að ég eigi að gera til að blablablabla. Ef mér líður illa með eitthvað þá læt ég það ekki liggja á hjartanu mínu og safna vöxtum utan á sig sem þyngja róðurinn heldur segji ég það strax og klára dæmið þar með. Ég er ég fyrir sjálfan mig og það er ég sem hef ansi mikið að segja um áttina og akstursaðferð

    Þetta er svo frábært. Það er enginn sem ákveður að manni þurfi að líða illa nema maður sjálfur. Takk takk takk. Mérr líður frábærlega.

    Það er svo frábært að geta tjáð sig og talað frá hjartanu. Prófaðu bara :)

    proppe ♥ 11:44 e.h. link to post 2 comments