HP&co
Vinir
  • Gassi minn
  • M8-blokk blokkanna
  • Monsa
  • Júlli
  • Jax
  • Eibie
  • Lou & Gurr
  • Þorbjörg
  • Guðný Helga
  • Ingibjörg
  • Hildur Her
  • Hildur Ýr
  • Tengdadóttir Bretlands


  • Fortíðin
  • Smá áminning
  • Nu er vandi i uppsiglingu.....
  • Gæsunin mikla
  • Fréttabransinn...
  • Gríptu tækifærið
  • Ert þú í langhlaupi eða á sprettinum
  • hvað þýðir nafnið ykkar...alltaf skemmtilegt svona...
  • Gleðilegt sumar
  • Teiknimyndaleikurinn
  • Hvað er að frétta?


  • far far away
  • september 2005
  • október 2005
  • desember 2005
  • janúar 2006
  • febrúar 2006
  • mars 2006
  • apríl 2006
  • maí 2006
  • september 2006
  • febrúar 2007
  • mars 2007
  • links to this post

    rúnturinn
  • Mogginn
  • Vísir.is
  • bankinn
  • vinnan
  • Óperan
  • CVI
  • posturinn minn

  • Free Hit Counter

    miðvikudagur, febrúar 28, 2007
    boys will be boys

    Já nú ligg ég í því. Róbert Aron er búinn að læra að pissa standandi..mér til ÓMÆLDRAR ánægju. Ánægjan er þó ekki algjör þar sem meira fer á setuna og gólfið heldur en ofan í klósettið. Ástæðan er ekki sú að hann hitti ekki; hann hittir en er svo upptekinn við að tala og hreyfa sig að það færist allt settið með!! En ég var að sjálfsögðu mjög stolt af þessu litla kríli og fannst þetta bara sætt...þar til skotið kom og það var svo fast að ég fékk næstum því marblett:

    R: Mamma.....nanananabúúbúúú (útleggst sem liggaligga lái á tungumáli eldri kynslóða)...þú kannt ekki pissa standandi..nanananabúúbúúú..baða ééééég og paaaabbbiii og Ótttaaaaððð og aaaafffi...nanananabúúbúúú...ÞÚ EÐT EKKI MEEEÐÐ TYYYYPPIIIIII!!!!!

    Sem sagt, 3ja ára sonur minn telur sér það til tekna að hann skuli vera með typpi en ekki ég :)Frábært!! Einmitt þegar ég finn að ég er komin í minnihlutahóp þá versnar ástandið og maður er laminn í framan með blautri tusku: ÉG ER EKKI MEÐ TYPPI!!

    proppe ♥ 11:38 f.h. link to post 2 comments